Myndlist og teikning fyrir 6-9 ára

Mynd: 
myndlist og teikning
Hverfi: 
Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur
Félag: 
Efnisflokkur: 
Sköpun, Sumarnámskeið
Tímabil: 
júní, júlí
Námskeiðslýsing: 

Námskeiðið er fyrir krakka sem elska að teikna og skapa. Á námskeiðinu læra nemendur helstu undirstöðuatriði í teikningu og fá tækifæri til að æfa sig í að teikna umhverfi sitt og prófa fjölbreytt efni og verkfæri til listköpunar. Á þessu námskeiði fá börn að stíga inn í heim ævintýra og sköpunar. Við förum út í náttúruna, uppgötvum nýjan efnivið, veltum fyrir okkur sögum og verðum sjálf hluti af ævintýrum sem við búum til saman. Börnin læra að skoða umhverfið sitt með nýjum augum, vinna saman og nota hugmyndaflugið til að skapa listaverk, sögur og persónur. Við munum nýta efnivið úr náttúrunni – greinar, lauf, steina, vatn og fleira – sem hráefni í alls konar verkefni. Í gegnum leik, rannsóknir og samtal fá börnin að þróa með sér sköpunargleði, sjálfstæða hugsun og gleðina við að prófa sig áfram.

  • Vika 1 · 10-13 júní kl. 13-16 – 4 dagar verð 19.990 kr.
    Myndlist og teikning: ævintýri og töfrar
  • Vika 2 · 16-20 júní kl. 9-12 – 4 dagar verð 19.990 kr.
    Myndlist og teikning: heimur hafsins
  • Vika 4 · 30 júní-4 júlí kl. 9-12 – 5 dagar verð 24.990 kr.
    Myndlist og teikning: goðsögur og hetjur

Ath.

Mikilvægt er að klæða börn eftir veðri, þar sem farið er út alla dagana og hafa meðferðis léttan bita, nesti.

Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að ná í Abler appið en öll samskipti og upplýsingar varðandi námskeiðið munu fara þar fram.

Vinsamlega kynnið ykkur skilmála Klifsins

 

Kennari: Sjöfn Asare

Sjöfn Asare lærði myndlist í San Francisco og leggur nú stund á doktorsnám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Sjöfn myndlýsti barnabókinni Gling gló eftir Rebekku Sif Stefánsdóttur, útskriftarbókum fyrir Kvennaskólann og hefur tekið að sér sjálfstæð teikniverkefni. Sjöfn er einnig rithöfundur og hefur gefið út skáldsögur og ljóðabækur.

Síðast uppfært: 
Þriðjudagur, 15. apríl 2025 - 11:59