







Leiklist og söngur er lifandi og skemmtilegt námskeið fyrir 6–9 ára krakka sem vilja leika, syngja og njóta sumarins. Hér er lögð áhersla á leiklist, raddbeitingu og sjálfsöryggi, auk þess sem börnin fá að vinna með tónlist, einfaldar söngæfingar og leiki sem auka tjáningu og samvinnu. Með því að prófa sig áfram á fyrir framan aðra og í söngnum byggja nemendur upp öryggi í framkomu ásamt því að fá tækifæri til að láta sköpunargáfuna njóta sín. Í lok námskeiðsins verður sýndur afrakstur vikunnar með stuttri sýningu eða myndbandi fyrir fjölskyldu og vini.
Reynt verður að vera úti eins mikið og veður leyfir, við mælum með að börnin komi klædd eftir veðri og komi með hollt og gott nesti fyrir kaffitímann.
Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að ná í Abler appið en öll samskipti og upplýsingar varðandi námskeiðið munu fara þar fram.
Vinsamlega kynnið ykkur skilmála Klifsins
4 dagar – 16-20 júní kl. 9-12 – Leiklist og söngur 6-9 ára – örfá pláss laus
5 dagar – 23-27 júní kl. 9-12 – Leiklist og söngur 6-9 ára – Örfá pláss laus
Kennari: Helena Hafsteinssdóttir
Helena Hafsteinsdóttir er leikkona, tónlistarkona og framleiðandi. Hún lærði leiklist við The American Academy of Dramatic Arts. Leiklistarkennaraferill hennar hófst hjá Leynileikhúsinu en þar kennir hún börnum á aldirnum 6-12 ára. Hún hefur mikla ástríðu fyrir listsköpun og leggur áherslu á að auka sjálfstaust barna í gegnum leiklistina.