Listasmiðja í Grasagarðinum

Mynd: 
Sumar, krakkar að teikna í Grasagarðinum.
Hverfi: 
Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir, Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur: 
Sköpun, Útivist, Myndlist
Tímabil: 
júní
Aldur: 
8 ára, 9 ára, 10 ára
Námskeiðslýsing: 

Sumarnámskeiðin verða haldin í Grasagarðinum í Laugardal. Í boði eru tvö námskeið fyrir börn á aldrinum 8-10 ára

Hámarksfjöldi þátttakenda: 10

10. – 13. júní (4 dagar): Aldur 8 til 10 ára, kl. 09.00 – 13.00

Námskeiðsgjald: 22.000

16. – 20. júní (17. júní er frídagur): Aldur 8 til 10 ára, kl. 09.00 – 13.00

Námskeiðsgjald: 22.000

Þátttakendur kynnast Grasagarðinum í Laugardal og því fjölbreytta lífríki sem þar er að finna. Áherslan er að vinna með umhverfið í anda sjálfbærni og nota það sem náttúran gefur af sér á skapandi hátt. Unnið er með margvísleg náttúruefni og aðferðir handverks og lista. Markmið námskeiðsins er að auka meðvitund og tengsl þátttakenda við umhverfi sitt og náttúru í gegnum rannsóknir, uppgötvanir, leik og samveru. 

Sumarnámskeiðin í Grasagarðinum hafa notið vinsælda frá árinu 2018. Leiðbeinandi námskeiðsins er Þórey Hannesdóttir, hönnuður og starfandi myndmenntakennari með meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur stýrt fjölskyldusmiðjum í samstarfi við Grasagarðinn í Reykjavík og Listasafn Árnesinga og hefur unnið sem sjálfboðaliði frá 2019 í smiðjum fyrir Örninn, minningar og styrktarsjóð. Hún er einnig áhugamanneskja um skapandi útinám með áralanga reynslu af frístundastarfi með börnum. Grasagarðurinn er lifandi safn undir berum himni sem má nota til fræðslu, rannsókna og yndisauka.

Skráning á netfangið: thorey.hannes.island@gmail.com

Síðast uppfært: 
Þriðjudagur, 22. apríl 2025 - 10:16