







Sumarfrístund fyrir börn fædd 2014-2017
Frístundaheimili Miðbergs bjóða upp á sumarnámskeið fyrir 6-9 ára börn frá 10 júní – 20. ágúst. Frístundaheimilin loka vegna sumarleyfa frá 8.júlí – 5.ágúst. Börn í þeim grunnskóla sem frístundaheimilið starfar við eiga forgang í sumarstarf frístundaheimilanna. Námskeið frístundaheimilanna eru frá kl. 8:30-16:30 alla virka daga. Gerð er dagskrá fyrir hverja viku sem byggir á frjálsum leik, hreyfingu, útiveru, skapandi starfi, smiðjum, þemadögum, ferðum og ýmsum ævintýrum í nærumhverfinu og um borgina. Mikilvægt að börn komi klædd eftir veðri og hafi með vatnsbrúsa og hollt nesti fyrir daginn. Skráð er á viku í senn og yfirlit yfir námskeiðin er að finna á skráningarvefnum http://sumar.fristund.is.