







Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla býður upp á sumarfrístund fyrir börn fædd 2014-2017. Sumarfrístundin stendur yfir frá 7. júní til 9. júlí og 8. til 21. ágúst. Engin sumarfrístund er í boði í sumarlokun Dalskóla frá 10. júlí til 7. ágúst.
Opnunartíminn er frá kl. 8:30-16:30 og fer skipulögð dagskrá hvers dags fram innan þess tíma.
Dagskrá hverrar viku er að hluta til bundin fyrirfram ákveðnu þema. Frjáls leikur, hreyfing, útivera, skapandi starf, smiðjur, þemadagar, ferðir og ýmis ævintýri í nærumhverfi og um borgina er það sem verður boðið upp á.
Skráð er viku í senn og er lokað fyrir skráningu kl.12 á föstudegi fyrir komandi viku. Allar umsóknir fara á bið þar til staðfestingarpóstur berst frá Úlfabyggð um að barnið hafi fengið pláss. Staðfestingarpóstur mun berast innan sólarhrings (á virkum degi). Takmarkaður fjöldi barna kemst að í hverri viku.
Börn sem eru í Dalskóla eiga forgang í sumarfrístund Úlfabyggðar.
Umsóknir barna sem ekki eru í forgangi í sumarfrístund Úlfabyggðar eru í síðasta lagi afgreiddar um hádegi á föstudegi áður en námskeið hefst.
Ef hætta á þátttöku á námskeiði þarf foreldri að afskrá viku áður en námskeið hefst (fyrir miðnætti á sunnudegi vegna námskeiðs sem hefst á mánudegi viku seinna), ella verður námskeiðsgjald innheimt að fullu í samræmi við uppsagnarskilmála, en foreldrum er bent á að kynna sér uppsagnarskilmála í sumarfrístund vel, en þá þarf að samþykkja sérstaklega til að umsókn um sumarfrístund sé gild.
Veittur er 20% systkinaafsláttur. Nánari upplýsingar um systkinaafslátt má finna á vef Reykjavíkurborgar - klikkið hér.
Nánari upplýsingar um gjaldskrána má finna á vef Reykjavíkurborgar - klikkið hér.
Opnað verður fyrir skráningu þriðjudaginn 23. apríl kl. 10:00 á http://sumar.fristund.is
Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla
Úlfarsbraut 118-120
113 Reykjavík
Nánari upplýsingar varðandi sumarfrístund veita Ragnheiður Erna forstöðukona og Nanna Lísa aðstoðarforstöðukona.
Netfang: ulfabyggd@rvkskolar.is
Símar: 411-7872 og 664-8303