CrossFit Sport Ævintýrabúðir

Mynd: 
Hverfi: 
Kópavogur
Efnisflokkur: 
Sumarnámskeið, Útivist, Íþróttir, Leikjanámskeið, Líkamsrækt
Tímabil: 
júní, júlí
Aldur: 
9 ára, 10 ára, 11 ára, 12 ára
Námskeiðslýsing: 

Ævintýrabúðir CrossFit sumarið 2024 fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára

Fjölbreytt, skemmtilegt og fræðandi leikjanámskeið um virkt og heilbrigt líferni

Sumarið 2024 verður sannkallað ævintýrasumar þar sem sett verður upp leikjanámskeið fyrir hressa krakka á aldrinum 9 -12 ára.
Námskeiðið er CrossFit miðað, þar sem börnin eru að læra ýmsar CrossFit hreyfingar og æfingar. Við leggjum áherslu á leik og skemmtun í bland við æfingar.

Ævintýrabúðirnar verða starfræktar í CrossFit Sport - Sporthúsinu Kópavogi og í og við Kópavogsdalinn fimm daga vikunnar frá kl. 09:00 - 12:00 frá og með 10. júní.
Til þess að tryggja gæði æfinga, fræðslu og öryggi barnanna er hámarksfjöldi í hóp 20 börn

Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur frá 10. júní til 19. júlí og hægt er að skrá sig viku í senn

10% afsláttur ef þú tekur 2 vikur eða fleiri

Lögð er áhersla á fjölbreytni, fræðslu og öruggar æfingar.
Námskeiðið munu fara fram í Sporthúsinu Kópavogi, í sal CrossFit Sport sem og í nágrenni Sporthússins.

Þægilegur íþróttafatnaður æskilegur og góðir skór. Krakkarnir koma einnig sjálfir með hollt nesti með sér.

Tímasetning

Mánudaga – föstudaga kl: 09:00 - 12:00
Verð 13.990 kr (vika 2 er 4 dagar og kostar því 11.192 kr.)

Tímabil

Vika 1: 10.-15. júní
Vika 2: 18.-21. júní
Vika 3: 24.-28. júní
Vika 4: 1.-5. júlí
Vika 5: 8.-12. júlí
Vika 6: 15.-19. júlí

Verð

  • 13.990,- kr./ vikan
  • 10% systkinaafsláttur á seinna barn og 10% afsláttur ef tekið er 2 vikur eða meira

Skráning fer fram á heimasíðu Sporthússins HÉR 

 

Síðast uppfært: 
Miðvikudagur, 17. apríl 2024 - 13:18