







Hið sívinsæla sumarnámskeið Klifsins Skapandi sumarfjör, verður í boði fyrir börn á aldrinum 6 til 10 ára sumarið 2024. Skapandi sumarfjör er skemmtileg leikja- og listasmiðja þar sem börn fá að leysa eigin sköpunarkraft úr læðingi á sviði vísinda, myndlistar, leiklistar, dans og tónlistar. Leikir og hópefli verða ríkjandi og munu námskeiðin einkennast af mikilli sköpunar- og leikgleði
Námskeiðin eru kennd bæði úti og inni.
Nemendur mæta með hollt og gott nesti og mikilvægt er að klæða sig eftir veðri hvern dag.
Staðsetning: Flataskóli
Lengd: Vika í senn
Kennslustundir: 22,5
Aldur: 5-10 ára