Hreyfimyndasmiðja 24-26 maí

Mynd: 
hreyfimyndagerd
Hverfi: 
Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur
Efnisflokkur: 
Tölvur, Sumarnámskeið, Myndlist
Tímabil: 
maí, júní
Aldur: 
9 ára, 10 ára, 11 ára, 12 ára, 13 ára
Námskeiðslýsing: 

Námskeiðið er fyrir alla krakka sem langar að læra um hvernig teiknimyndir og stuttmyndir verða til. Á námskeiðinu læra nemendur um grunnatriði fjölbreyttra aðferða sem notaðar eru við hreyfimyndagerð. Þar munu nemendur læra á “stop motion”, leir hreyfimynda- og teiknimyndagerð. Ásamt því munu nemendur kynnast sögu hreyfimyndagerðar og prófa sig áfram með margskonar tækni og efni og búa til sögur og persónur til að vinna með. Í lok námskeiðsins taka þau með sér heim persónurnar sínar og fá póst sendann með myndböndunum sem þau hafa unnið í. Einnig mælum við með að taka með sér smá nesti í poka.

Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að ná í Sportabler appið en öll samskipti og upplýsingar varðandi námskeiðið munu fara þar fram.

Föstudagur: 17:00 - 19:30

Laugadagur: 10:00 - 13:00

Sunnudagur: 10:00 - 13:00

Síðast uppfært: 
Þriðjudagur, 16. apríl 2024 - 12:25