Leiklistarnámskeið 2-4 bekk & 5-7. bekk

Mynd: 
Hverfi: 
Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur
Efnisflokkur: 
Sköpun, Leiklist
Tímabil: 
janúar, febrúar, mars, apríl
Aldur: 
7 ára, 8 ára, 9 ára, 10 ára, 11 ára, 12 ára, 13 ára
Frístundakort: 
Námskeiðslýsing: 

Klifið er sem fyrr í samstarfi í við Leynileikhúsið sem mun sjá um leiklistarnámskeið fyrir 2.-7 bekk í Garðabæ.

Námskeiðið er kennt 1x í viku í 10x vikur. Önnin endar svo í leikhúsi þar sem afrakstur vinnunnar er sýndur. Ungu leikararnir fá búning og leikhúsförðun og aðstandendur geta komið og séð krakkana blómstra á sviðinu.

Öll leiklistarnámskeið Leynileikhússins byggjast fyrst og fremst upp á LEIKGLEÐI og frumsköpun. Með leikgleðina að leiðarljósi fara nemendur í grunnatriði í leiklist með hjálp leikja og æfinga. Lögð er áhersla á einbeitingu, að gefa skýr skilaboð, hlustun, samvinnu, uppbyggingu stuttra leikrita og persónusköpun.

Þegar líða tekur á námskeiðið eru þessi grunnatriði færð yfir í spunavinnu sem á endanum skilar sér í lokasýningu sem nemendur sýna fyrir aðstandendur. Lokasýningin er því byggð upp nær alfarið á spuna og sköpunarkrafti nemenda sem kennari aðstoðar við að púsla saman í leikverk og þar fá allir ungu leikararnir að njóta sín á sinn hátt. Það er mikilvægt að hver nemandi þroskist og vaxi á eigin forsendum, byggi upp sjálfstraust og heilbrigða sjálfsmynd og leiklistin er mjög gott tæki til að ná þeim árangri.

  • Mánudaga Kl. 16.10-17.10  –  2.-4. bekkur
  • Mánudaga Kl. 17.20-18.20  –  5.-7. bekkur

Hefst: 30. janúar 
Staðsetning: Sjálandsskóli
Kennslustundir: 18. kennslustundir
Lengd: 11 vikur

Síðast uppfært: 
Þriðjudagur, 23. janúar 2024 - 17:37