







Félagsmiðstöðvar Miðbergs (Hólmasel, Bakkinn og Hundrað&ellefu) bjóða upp á sumarsmiðjur/sumarnámskeið fyrir 10-12 ára börn sem ljúka 5.-7. bekk frá 10 júni - 17. júlí. Skráning hefst 2. maí kl. 10:00. Hægt er að velja á milli smiðja/námskeiða sem standa yfir í hálfan eða heilan dag. Skrá þarf á hverja smiðju/námskeið fyrir sig.
Smiðjurnar fara fram í félagsmiðstöðvunum í hverfinu ásamt því að farið verður í ferðir um Reykjavík og nágrenni. Við viljum minna á að mæting í smiðjur og á viðburði er á ábyrgð forráðamanna. Einnig er mikilvægt að börn komi klædd eftir veðri, með þann útbúnað sem er tilgreindur fyrir smiðjuna eða námskeiðið ásamt vatnsbrúsa og hollu nesti ef þess þarf. Yfirlit yfir smiðjur/námskeið í boði er að finna á skráningarvefnum http://sumar.fristund.is.