







Sumarfrístund fyrir börn fædd 2015-2018.
Frístundaheimili Tjarnarinnar bjóða upp á þjónustu í sumarfrístund fyrir börn sem eru að ljúka 1.-4. bekk frá og með 10. júní til og með 20. ágúst. Lokað er vegna sumarleyfa frá og með 07.07. til og með 04.08. Skráð er fyrir viku í senn í sumarfrístund en opnunartími sumarfrístundar er frá kl. 8:30 til 16:30. Athygli er vakin á því að börn í þeim grunnskóla sem frístundaheimilið starfar við eiga forgang í sumarstarf frístundaheimilanna við sinn grunnskóla og fer skráning fram á skráningarvefnum http://sumar.fristund.is
Í sumarstarfi frístundaheimila Tjarnarinnar er lögð áhersla á öryggi og kunnuglegt umhverfi í bland við lærdóm, leik og gleði. Mikið er lagt upp úr því að nýta umhverfið nær og fjær til útiveru og að veita börnunum tækifæri á að kynnast því sem borgin og nánasta umhverfi hennar hefur upp á að bjóða. Unnið er með vikuþemu á öllum frístundaheimilunum og mikil metnaður er settur í það að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega þannig að öll geti fundið viðfangsefni við hæfi. Mikilvægt að börnin komi klædd eftir veðri og hafi með vatnsbrúsa og hollt nesti fyrir daginn og að foreldrar fylgist vel með dagskrá og sendi börnin rétt útbúin í samræmi við viðfangsefni dagsins.
Skráð er fyrir viku í senn og er lokað fyrir skráningu kl.12:00 á fimmtudegi fyrir komandi viku. Ef hætta á við þátttöku á námskeiði þarf foreldri að afskrá minnst 11 dögum áður en námskeið hefst (í síðasta lagi fyrir miðnætti á miðvikudegi vegna námskeiðs sem hefst á mánudegi rúmri viku seinna), ella verður námskeiðsgjald innheimt að fullu í samræmi við uppsagnarskilmála, en foreldrum er bent á að kynna sér uppsagnarskilmála í sumarfrístund vel, en þá þarf að samþykkja sérstaklega til að umsókn um sumarstarfrístund sé gild. Ef umsóknir eru umfram framboð hverju sinni er fyrst litið til forgangshópa til samræmis við 4. gr. reglna um þjónustu frístundaheimila, sjá hér, en annars eru umsóknir afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Umsóknir barna sem ekki sækja grunnskólann sem viðkomandi frístundaheimili þjónustar eru afgreiddar í síðasta lagi um hádegi á föstudegi áður en námskeið hefst.
Frístundaheimili sem bjóða upp á Sumarfrístund:
Daumaland við Austurbæjarskóla , Barnónsstíg 32, 101 Reykjavík, sími 411-5570 og 695-5062
Netfang: draumaland@reykjavik.is
Vefsíða: https://reykjavik.is/draumaland
Eldflaugin við Hlíðaskóla, Hamrahlíð 2, 105 Reykjavík, sími 411-5560 og 699-7615
Netfang: eldflaugin@reykjavik.is
Vefsíða: https://reykjavik.is/eldflaugin
Frostaheimar, safnfrístundaheimili f. börn í 3. og 4. bekk í Vesturbæ, Frostaskjóli 6, 107 Reykjavík, sími 411-5740 og 695-5083
Netfang: frostheimar@reykjavik.is
Vefsíða: https://reykjavik.is/frostheimar
Halastjarnan við Háteigsskóla, Háteigsvegi 5, 105 Reykjavík, sími 411-55880 og 663-6102
Netfang: halastjarnan@reykjavik.is
Vefsíða: https://reykjavik.is/halastjarnan
Selið við Melaskóla, Hagamel 1, 107 Reykjavík, sími 411-5720og 695-5061
Netfang: selid@reykjavik.is
Vefsíða: https://reykjavik.is/selid
Skýjaborgir við Vestubæjarskóla, Vesturvallargötu 10 Reykjavík, sími 411-5730 og 695-5053
Netfang: skyjaborgir@reykjavik.is
Vefsíða: https://reykjavik.is/skyjaborgir
Undraland við Grandaskóla, Keilugranda 12, 107 Reykjavík, sími 411-5710 og 695-5054
Netfang: undraland@reykjavik.is
Vefsíða: https://reykjavik.is/undraland
Skráning hefst 29. apríl kl. 10:00 hér
Gjaldskrá fyrir sumarfrístund má finna hér
Veittur er 20% systkinaafsláttur af grunngjaldi.
Sérstök athygli er vakin á uppsagnarskilmálum, sem lesa má um hér og að ekki er hægt að nýta frístundakortið í sumarstarfi.
Nánari upplýsingar má nálgast á hverju frístundaheimili fyrir sig (sjá upplýsingar hér að ofan) eða hjá frístundamiðstöðinni Tjörninni með því að senda póst á tjornin@reykjavik.is