Ritsmiðja með Emblu Bachmann

Mynd: 
Embla Bachmann
Hverfi: 
Grafarvogur
Efnisflokkur: 
Sköpun, Tungumál, Fræðsla
Tímabil: 
júní
Aldur: 
13 ára, 14 ára, 15 ára, 16 ára
Ókeypis námskeið: 
Námskeiðslýsing: 

Embla Bachmann kennir ungmennum hvernig búa á til grunninn að sinni eigin skáldsögu og mun fara yfir hvert atriði í sköpunarferlinu. Undir lok námskeiðsins verða öll komin með beinagrind að sinni eigin bók og verkfærakassa til að halda áfram.

Lögð verður áhersla á að hafa gaman og að hver og einn þátttakandi fái að njóta sín.

Embla er nítján ára bókaormur sem hefur haft brennandi áhuga á ritlist í mörg ár og hlotið ýmis verðlaun fyrir skrif sín. Hún hefur gefið út tvær bækur, Kærókeppnin og Stelpur stranglega bannaðar.

Aldur: Börn fædd 2009, 2010, 2011 og 2012.

Smiðjan fer fram í Borgarbókasafninu Spönginni og stendur yfir í fjóra daga, 9.-12. júní kl. 13:00-15:00

Skráning hefst 29. apríl kl.13 á sumar.vala.is

Nánari upplýsingar veitir: 
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411-6230

Síðast uppfært: 
Miðvikudagur, 16. apríl 2025 - 10:19