Akrýlmálun fyrir lengra komna

Mynd: 
Hverfi: 
Árbær og Norðlingaholt, Grafarvogur, Grafarholt og Úlfarsárdalur, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur
Félag: 
Efnisflokkur: 
Myndlist
Tímabil: 
janúar, febrúar, mars, apríl
Aldur: 
16 ára, 17 ára, 18 ára, 19 ára og eldri
Frístundakort: 
Námskeiðslýsing: 

Námskeiðið hentar þeim sem hafa lokið námskeiðinu Akrýlmálun I hjá Klifinu eða hafa almennan grunn í akrýlmálun.

Á námskeiðinu verður unnið í ólíkum verkefnum, nemendur munu læra fleiri aðferðir til að nota akrýlmálninguna en kennt er á grunnnámskeiðinu og farið verður í fleiri leiðir til að flytja teikningu yfir á pappír/striga áður en byrjað er að mála.

Efni og áhöld

Nemendur útvega sjálfir málningu, pensla, blýanta og strokleður fyrir námskeiðið en við sendum póst fyrir fyrsta tíma og bendum á hvað og hvar er gott að fjárfesta í slíku. 

Hefst 27. janúar
Lengd: 11 vikur
Tími: mánudaga kl 18:00 - 20:00

Síðast uppfært: 
Miðvikudagur, 18. desember 2024 - 15:58